20. maí 2009

Óvissuferð á Grænudyngju

Óvissuferð á Grænudyngju

Óvissuferð á Grænudyngju


Nú er komið að þriðju göngu "Akurskóli á Iði, útívist og hreyfing" Í siðustu viku fórum við í létta göngu  í Sandvík á Reykjanesi. Laugardaginn 23. maí ætlum við að reyna aðeins meira á okkur og ganga upp á Grænudyngju sem er 401 metri að hæð. Eins og í fyrstu göngu okkar í vor þurfum við að aka að  Keili. Þar förum við uppá Trölladyngju, sem er hvassbrýnt móbergsfjall, 375 metrar að hæð. Við göngum ekki upp á topinn nema við viljum. Þetta er frekar auðveld ganga upp brattar móbergshlíðar Trölladyngju sem eru fastar undir fæti.” Þaðan höldum við áfram upp á Grænudyngju. Óvísst er hvað ferðin taki langan tíma en nauðsynlegt er að taka með sér nesti, góða skó og vera klædd eftir veðri.

 
Hlökkum til að sjá ykkur fyrir utan Akurskóla kl. 10 næsta laugardag.

Fyrir hönd undirbúningshópsins,
Anna s. 421-4022

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla