Óvissuferð í Sólbrekkuskóg
Miðvikudaginn 28. maí fóru börnin í frístundarskólanum Akurskjóli í óvissuferð. Farið var í Sólbrekkuskóg og skemmtu allir sér mjög vel. Farið var í ratleik og ýmsa aðra skemmtilega leiki. Veðrið lék við okkur í ferðinni, sól og hiti. Það vakti mikla gleði á meðal barnanna þegar lítill kanínuungi kom hoppandi í átt til þeirra og fengu öll börnin að klappa þessum litla vini okkar. Mikil fjölgun hefur orðið á börnum hjá okkur í vetur og fór fjöldinn upp í 64 börn þegar mest var. Starfið hefur vaxið og dafnað frá ári hverju og nú þegar hafa 73 börn sótt um vistun í Akurskjóli fyrir næsta skólaár. Það er því mikil vöntun á góðu starfsfólki í Akurskjól fyrir næsta haust. Starfsfólk Akurskjóls óskar öllum börnum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og vonum við að þið kæru vinir eigið eftir að njóta sumarsins og komið því glöð og ánægð til starfa á næsta skólaári.  Sjá má myndir á myndasíðu Akurskjóls.
Kveðja, Lúlla,Kolla, Fríða, Bryndís og  Hrafnhildur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


