Rannsóknarvinna hjá 3. bekk
Stærðfræði 3. bekkjar er mjög fjölbreytt og gefur skemmtileg tækifæri sem gaman er að nýta. Í byrjun febrúar fóru krakkarnir í heilmikla rannsóknavinnu á fjölda akandi ökutækja. Krakkarnir voru búin að undirbúa sig vel áður en lagt var af stað, búin að útbúa töflu þar sem algengustu litir ökutækja voru skráðir niður og síðan var lagt af stað í leiðangur. Hópurinn var fljótlega sammála um bestu staðsetninguna þar sem góð yfirsýn gafst, Reykjanesbrautin og næsta nágrenni.
Talningin stóð yfir í 10 mínútur og þá var gengið til baka í skólann og þar var unnið sameiginlega úr niðurstöðunum sem voru að gefa þeim heilmiklar upplýsingar eins og algengasta litinn og ef 70 bílar aka framhjá á 10 mínútum þá er líklegt að á 20 mínútum séu þeir 140 og svona er hægt að halda áfram. Á myndunum er hægt að sjá hversu vinnusöm krakkarnir eru og þau áttu erfitt með að hætta þegar þessar 10 mínútur voru liðnar.
-1.jpg)
-1.jpg)
-1.jpg)
-1.jpg)
-1.jpg)
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


