Raunveruleikurinn í 10.bekk
 
Raunveruleiknum í 10. bekk er lokið þetta skólaárið og lenti Akurskóli í 5. sæti með 6382 stig. Við erum svakalega ánægð með þann árangur en ætlum okkur að gera enn betur á næsta ári. Allir nemendur í Örnum og Fálkum tóku þátt og stóðu sig vel.  Rúmlega 1000 nemendur í grunnskólum á Íslandi lifðu í samfélagi Raunveruleiksins í 28 daga en þeir dagar endurspegluðu um tvö og hálft ár í lífi fólks.  Við hvetjum alla til þess að lesa um þennan frábæra leik á vefslóðinni  www.raunveruleikur.is  en einnig er hægt að sjá í hvaða sæti hver og einn nemandi við Akurskóla lenti.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


