Röskun á skólastarfi miðvikudaginn 30. nóvember

Líkt og fram hefur komið í fréttum munu grunnskólakennarar ganga úr störfum sínum miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 12:30.
Þennan dag hefst frístundarskólinn Akurskjól kl. 12:30 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
Allir aðrir nemendur í 1. – 10. bekk fara heim klukkan 12:30.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með fréttum. Ef samningar nást fyrir þennan tíma helst skólastarf óbreytt.
Stjórnendur Akurskóla

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.