Rýmingaræfing
 
Árviss rýmingaræfing fór fram í Akurskóla í morgun. Æfingin var haldin í samvinnu við Brunavarnir Suðurnesja og tókst mjög vel. Nemendur voru vel undirbúnir, því búið var að upplýsa þá um hana með góðum fyrirvara. Markmið æfingarinnar eru m.a. að:
·         þjálfa nemendur í að rýma húsnæði skólans örugglega á sem skemmstum tíma
·         viðhalda þekkingu nemenda á rýmingarleiðum
·         allir þekki neyðarhringingar
Á æfingum sem þessum eru kynntar fyrir nemendum og starfsfólki skólans helstu flóttaleiðir í skólabyggingunum, hvernig neyðarhringing hljómar og hvernig á að bera sig að ef ske kynni að eldur eða annað af svipuðu tagi kæmi upp á.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


