15. október 2008

Samræmd próf í 4. og 7. bekk.

Samræmd próf í 4. og 7. bekk.

Fimmtudaginn 16. október og föstudaginn 17. október fara fram samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði. Nemendur í 7. bekkjum mæta í skólann þessa daga kl. 9:00 og fara heim að loknu prófi. Nemendur í 4. bekkjum mæta í skólann þessa daga samkvæmt stundarskrá.

 

Nauðsynlegt er að yfirfara vel pennaveski, en þar eiga að vera blýantar með dökku blýi, strokleður, yddari, penni (ekki kúlupenni) með dökkbláu eða svörtu bleki, litir, reglustika, gráðubogi og vasareiknir.

 

Mikilvægt er að nemendur séu vel hvíldir og borði góðan morgunverð. Þeir þurfa að hafa með sér hollt nesti sem þeir geta hresst sig á í hléinu sem er á milli prófahluta. Við viljum minna á mikilvægi hvíldar og næðis fyrir nemendur þessa daga því vissulega krefst þetta verkefni mikillar einbeitingar og úthalds.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla