Samtalsdagur 24. september
Fimmtudaginn 24. september verður samtalsdagur í Akurskóla. Að venju mæta nemendur ásamt foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara þar sem rætt verður um líðan, nám og framvindu náms.
Bókanir í viðtöl fara fram í Námfús, nýju námsumsjónarkerfi skólans. Námfús hefur verið innleitt í Akurskóla á þessu skólaári og hefur innleiðingin gengið vel. Kerfið auðveldar samskipti heimila og skóla og veitir foreldrum betri yfirsýn yfir nám og skólastarf barna sinna. Bókanir vegna samtalsdagsins eru opnar í Námfús og hvetjum við foreldra til að ganga frá tímapöntun þar í síðasta lagi 23. september.
Foreldrar sem hafa ekki enn fengið aðgang að Námfús eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skólann með því að senda tölvupóst á akurskoli@akurskoli.is
Athygli er vakin á því að Frístundaskólinn Akurskjól verður opinn frá kl. 8:00 fyrir þau börn sem þar eru skráð.
Við hlökkum til að hitta nemendur og foreldra þeirra á samtalsdeginum og eiga uppbyggilegt samtal um skólastarfið og markmið vetrarins.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


