Selma Björk kemur í heimsókn
Selma Björk Hermannsdóttir kemur í heimsókn í Akurskóla fimmtudaginn 3. apríl og ræðir við nemendur í 5. - 10. bekk. Hún segir m.a. frá því hvernig hún kaus að takast á við eineltið sem hún varð fyrir og gefur nemendum góð ráð.
Selma Björk hefur kosið að svara hatri með ást eins og hún orðar það. Hún leggur áherslu á að finna til með þeim sem leggja í einelti og svara þeim með ást. Það afvopnar þann sem leggur í einelti og hann nær ekki því fram sem hann er að reyna.
Hermann Jónsson, faðir Selmu Bjarkar, verður með stuttan fyrirlestur í sal Akurskóla um kvöldið, fimmtudaginn 3.apríl kl. 19:30. Fyrirlesturinn er í boði foreldrafélags Akurskóla og hann á erindi til allra og hvetjum við foreldra til þess að koma og hlusta á hann.
Kveðja, Foreldrafélag Akurskóla og starfsmenn.

Selma Björk ásamt Hermanni föður sínum

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.