Setning Ljósanætur
Nemendur Akurskóla tóku þátt í setningu Ljósanætur við Myllubakkaskóla í morgun.  Allir nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar ásamt elstu nemendum leikskóla bæjarins tóku þátt í athöfninni. Ljósanótt var sett með táknrænum hætti þegar nemendur slepptu 2000 blöðrum til himins.
Gítarsveit Gítar Myllos stjórnaði fjöldasöng og sungu krakkarnir m.a. um meistara Jakob á þremur mismunandi tungumálum. Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar Ljósanætur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


