30. ágúst 2012

Setning Ljósanætur

Setning Ljósanætur
Gulir og glaðir


Nemendur Akurskóla tóku þátt í setningu Ljósanæturhátíðar í dag. Dagurinn hófst snemma hjá okkur og haldið var með rútum að gamla barnaskólanum en þaðan gengum við niður Suðurgötu og í gegnum Skrúðgarðinn með gular blöðrur en það er litur skólans á þessari hátíð.



Árni Sigfússon bæjarstjóri hélt ræðu og sameiginlegur kór úr öllum skólunum stýrði söngnum. Það voru þær Karen Mist Arngeirsdóttir og Tanja Sædal sem voru fulltrúar skólans í kórnum.


Lokaathöfnin var svo að sleppa blöðrunum og setja þannig formlega Ljósanótt.



Nemendur skólans voru til fyrirmyndar á allan hátt og veðrið lék við okkur.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla