Síðasta vinnuhelgi í Seylunni.
Okkur bráðvantar vaska menn, konur, karla og hressa krakka í vinnu við Narfakotsseylu.
Næsta laugardag þann 12. nóvember verður síðasti vinnudagurinn í haust í Narfakotsseylu. Við þurfum að steypa nokkra drumba niður í jörðina, nú þegar er búið að moka holur fyrir þá.
Hugmyndin er að hafa eina vinnulotu þennan síðasta dag. Við ætlum að byrja kl.10 og gerum ráð fyrir að klára verkið um hádegi. Er mælst til að þátttakendur taki með sér nesti, en boðið verður upp á kaffi fyrir fullorðna fólkið og drykki fyrir börnin. til að hægt sé að skipuleggja vinnuna sem best þurfum við að vita hverjir ætla að koma. Guðmundur Hrafn verður á staðnum og stýrir verkinu. Sendið endilega tölvupóst á akurskoli@akurskoli.i fyrir föstudaginn 11.nóvember og látið vita ef þið viljið taka þátt. Ykkar vinnuframlag yrði vel þegið.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


