Sigga Dögg hittir foreldra og unglinga
SIGGA DÖGG, KYNFRÆÐIGNUR, VERÐUR MEÐ FYRIRLESTUR FYRIR FORELDRA OG NEMENDUR Í 8. - 10. BEKK, MIÐVIKUDAGINN 10. APRÍL NK.
Það er mikilvægt fyrir foreldra að tala við barn sitt um kynlíf. Mörgum foreldrum finnst erfitt að ræða þessi mál við börnin sín og því er gott að fá fræðslu um það hvernig best er að nálgast þetta málefni. Þannig geta foreldrar upplýst börnin sín betur og hjálpað þeim að taka réttar ákvarðanir í sambandi við kynhegðun sína.
Dagskráin verður sem hér segir:
Strákar í 8.-10. bekk kl: 08.00–09.00
Stúlkur í 8.-10. bekk kl: 13.00–14.00
Foreldrar barna í 8.-10. bekk kl: 18.00-19.00
Foreldrar og börn þeirra kl: 19.00-19.20
Við vonum að sem flestir foreldrar sjái sér fært að mæta kl. 18.00 á sal Akurskóla enda þarft umræðuefni hér á ferð.
Stjórn FFA
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


