Sjálfsmatsskýrsla Akurskóla 2025–2026 komin út
Sjálfsmatsskýrsla Akurskóla fyrir skólaárið 2025–2026 er nú komin út og hefur verið birt á heimasíðu skólans. Í skýrslunni er að finna heildstæða umfjöllun um starfsemi skólans, niðurstöður mats á helstu þáttum skólastarfsins og áherslur til áframhaldandi þróunar og umbóta.
Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í daglegu skólastarfi Akurskóla og byggir á ákvæðum laga og aðalnámskrár grunnskóla. Markmið matsins er meðal annars að efla gæði náms og kennslu, auka vellíðan nemenda og starfsfólks og tryggja að starfsemin sé í samræmi við lög og reglur.
Í sjálfsmatsskýrslunni má finna fjölbreyttar upplýsingar um starf skólans, meðal annars:
- Kennslufræðilega sýn og gildi skólans sem byggja á virðingu, gleði og velgengni.
- Innra mat og matstæki sem notuð eru til dæmis kannanir, skimunarpróf og viðtöl.
- Yfirlit yfir viðfangsefni mats á skólaárinu og hvernig niðurstöður eru nýttar til umbóta.
- Niðurstöður úr lykilkönnunum meðal nemenda, foreldra og starfsfólks.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður sjálfsmatsins sýna að Akurskóli býr yfir ýmsum styrkleikum:
- Gott samband nemenda og kennara og jákvætt námsumhverfi mælist yfir landsmeðaltali.
- Áhugi nemenda á stærðfræði og virk þátttaka í kennslu er einnig sterk.
- Starfsfólk upplifir góða líðan, samstarf og jákvæðan starfsanda.
- Flestir árgangar eru við eða yfir landsmeðaltali í lesfimi, lesskilningi og stærðfræði.
- Nemendur í 7. bekk náðu sérstaklega góðum árangri í Matsferli.
- Markviss vinna í læsi, þar á meðal lestrarátök og einstaklingsmiðaður stuðningur, hefur skilað góðum árangri.
Sjálfsmat er lifandi ferli í Akurskóla og gegnir lykilhlutverki í að þróa og styrkja skólastarfið til framtíðar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


