19. desember 2012

Skákiðkendur í Akurskóla

Skákiðkendur í Akurskóla

Tuttugu og níu keppendur mættu í Krakkaskák, mót sem haldið var í samstarfi við Samsuð, félagsmiðstöðvarnar á Suðurnesjum sl. laugardag.
Siguringi Sigurjónsson, hjá krakkaskak.is, segir á vf.is að mótið hafi tekist mjög vel og hafi verið skemmtilegt. Á mótið mættu krakkar úr næstum öllum bæjarfélögunum á Suðurnesjum, allir keppendur fengu verðlaun og fóru reynslunni ríkari heim. Keppnin var hörð og mikil spenna var um efstu sætin alveg fram að lokaumferð. Tefldar voru 8 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Akurskóli átti tvo fulltrúa í keppninni og lentu báðir í verðlaunasæti.  Strákarnir kepptu í flokki drengja 11 – 16 ára þar sem Pálmi Viðar lenti í 2.sæti og Alexander Hauksson í 3.sæti. Við í Akurskóla óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla