Skátastarf Heiðbúa
Mánudaginn 2. febrúar sl. kom Hrafnhildur, formaður skátanna og kynnti fyrir okkur skátastarf Heiðabúa. Hrafnhildur kom klædd í hátíðarbúningnum og sýndi krökkunum allskonar klúta og merkingu þeirra. Síðan tókum við einn drekafund en það er einmitt fundur hjá yngstu krökkunum í skátunum. Hún sýndi þeim hvernig hann gengur fyrir sig og svo var farið í nokkra leiki og endað svo fundinn. Hrafnhildur mun koma til okkar í Akurskjól einu sinni í viku í u.þ.b. mánuð og kynna fyrir krökkunum skátastarfið.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


