Skemmtiatriði í skólanum
Fimmtudaginn sl.  var haldin skemmtun í salnum í Akurskóla þar sem 8.-9. bekkur voru að sýna skemmtiatriði. Þetta byrjaði með því að hópur úr tónlistarvali var búinn að vera að æfa  lag fyrir áramót til að sýna fyrir bekkina. Þau fluttu lagið Popplag í G dúr og gerðu það rosalega vel. Svo fengum við að sjá skemmtiatriði frá Spóum. En þau gerðu grín af kennurum hér í Akurskóla, gert var grín af Habbý, Þórdísi, Hrefnu, Svenna, Skúla, Þormóði , Kjartani, Bínu og Jónínu. Þau gerðu þetta alvega rosalega vel og alir voru með góðan húmor fyrir þessu gríni og enginn tók því alvarlega. Svo voru það Helga Vala og Erla  úr Tjöldum sem sungu og dönsuðu fyrir okkur. Þær sungu rosa vel og dansinn var alveg frábær og fékk alla til að dilla sér.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


