Skemmtileg stund með barninu þínu.
Hvað er skemmtilegra en að eiga notalega stund með barni sínu og um leið að kynnast skólasystkinum barnsins. Á morgun miðvikudag 23 febrúar kl. 19 er seinni hluti námskeiðsins,,Ég og þú, þú og ég við tvö saman" fyrir börn á miðstigi í Akurskóla.Góð þátttaka var meðal barna og foreldra á fyrri hluta námskeiðsins og voru fjölbreytt námskeið í boði. Þar má nefna bakstur, skák, skartgripagerð, þæfingu, jóga og útikertagerð. Meginmarkmið námskeiðsins er að gefa foreldrum og nemendum tækifæri á að kynnast öðrum skólafélögum og foreldrum þeirra. Námskeiðin stuðla einnig að aukinni samvist barna og foreldra og hefur þar af leiðandi mikið forvarnargildi.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


