27. febrúar 2026

Skólakeppni í upplestri

Skólakeppni í upplestri

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Akurskóla í dag þar sem átta efnilegir nemendur úr 7. bekk sýndu framúrskarandi færni í upplestri. Keppnin var afrakstur vandaðs undirbúnings sem hófst á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn.

Stemningin var einstaklega góð en nemendur 6. og 7. bekkjar fylgdust með sem gestir. Að lokinni spennandi keppni stóðu uppi sem sigurvegarar þær Íris Freyja Atladóttir og Heiðdís Klara Hjartadóttir en Frida Rós Linnér var valin varamaður. Reynslumiklir dómarar, þær Hafdís Garðarsdóttir fyrrverandi kennari og kennsluráðgjafi, Sóley Halla Þórhallsdóttir fyrrverandi skólastjóri og Ásgerður Þorgeirsdóttir fyrrverandi skólastjóri, áttu ekki auðvelt val enda var frammistaða allra keppenda til fyrirmyndar.

Sigurvegararnir munu halda merki Akurskóla á lofti í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer þriðjudaginn 10. mars í Stapa, Hljómahöll og hefst hún kl. 16.30.

 

Myndir í myndasafninu.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla