6. júní 2013

Skólaslit

Skólaslit

Skólaslit Akurskóla fóru fram í dag, fimmtudaginn 6.júní. Akurskóla er nú slitið í áttunda sinn. Árið var viðburðarríkt og voru þeir sem fluttu ávörp, þær Helga Eiríksdóttir deildarstjóri, Bryndís Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri og Sigurbjörg Róbertsdóttir skólastjóri sammála um að það hefði verið afar farsælt og skemmtilegt. Að þessu sinni voru sex skólaslit í skólanum, aldursskipt. Hver einasti nemandi Akurskóla kom upp á svið og kennarar hópanna lásu upp hrós frá samnemendum og kennurum.

10. bekkur var svo útskrifaður kl. 14:00 í dag. Þar flutti skólastjóri ávarp, fulltrúi nemenda talaði, umsjónarkennarar voru með ræðu, nemendur fengu útskriftarskjöl og þeir sem skarað hafa fram úr fengu viðurkenningar. Allir nemendur voru kvaddir með rós. Eftir athöfn var foreldrum og forráðamönnum boðið til kaffisamsætis í skólanum og var það notalega stund.

Meðfylgjandi eru myndir af öllum hópum í Akurskóla en fleiri myndir eru í myndasafni.

Kettlingar

Kanínur

Hvolpar

Kópar

Húnar

Kálfar

Kiðlingar 

Háhyrningar

Hnísur

Höfrungar

Hnúfubakar

Kjóar

Kríur

Krummar

Tjaldar

Þrestir

Spóar

Ernir 

Fálkar

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla