6. júní 2025

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2025

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2025

Hátíðleg útskrift 10. bekkjar fór fram þann 5. júní í Akurskóla og skólaslit fyrir 1. – 9. bekk þann 6. júní.

Athafnirnar voru báðar haldnar í íþróttahúsi Akurskóla.

Við útskrift 10. bekkjar voru veittar viðurkenningar og hlutu 7 nemendur viðurkenningar.

Aðalheiður Ísmey Davíðsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur og fékk að gjöf bækurnar „Et barn i en verden“ og „Hugrekki til að hafa áhrif“ frá danska sendiráðinu og Lionsklúbbnum í Njarðvík.

Fimm nemendur hlutu viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur.

Kári Ásmundsson fékk bókina „Perlur í náttúru Íslands“ frá Kölku, Grétar Ingi Jónsson hlaut bókina „Maðurinn“ frá UMFN og Maja Kuzmicka fékk „Skemmtilegu dýrin“ frá Lionsklúbbnum í Njarðvík. Marika Maja Scislowicz hlaut „Íslenskar þjóðsögur“ frá Eymundsson og Linda Líf Hinriksdóttir fékk „Ljóðin hennar Vigdísar“ frá Lionsklúbbnum Æsu.

Ísak Logi Weaver hlaut viðurkenningu fyrir framfarir og þrautsegju í námi og fékk „Vísindabókina“ frá Lionsklúbbnum í Njarðvík.

Linda Líf Hinriksdóttir flutti ræðu fyrir hönd nemenda og færði skólanum þakkir fyrir góð ár. Umsjónarkennarar fluttu einnig ræðu þar sem þeir minntust á góðar stundir með nemendum og hvöttu þá til dáða á næsta skólastigi. Sigurbjörg skólastjóri flutti ávarp þar sem hún óskaði nemendum velfarnaðar í framtíðinni og þakkaði starfsfólki skólans fyrir vel unnin störf en einstakur metnaður og gleði hefur einkennt skólaárið.

Að athöfn lokinni var boðið upp á kaffisamsæti í skólanum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans áttu notalega samverustund.

Nemendur í 1. – 9. bekk mættu á stutta athöfn föstudaginn 6. júní og fóru síðan með umsjónarkennurum og fengu vitnisburð og hrósskjöl í sínum heimastofum.

Við óskum nemendur og aðstandendum góðs sumars og þökkum samstarfið.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla