10. júní 2026

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2026

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2026

Útskrift 10. bekkjar fór fram þann 9. júní í Akurskóla og skólaslit fyrir 1. – 9. bekk þann 10. júní.

Athafnirnar voru báðar haldnar í íþróttahúsi Akurskóla.

Við útskrift 10. bekkjar voru veittar viðurkenningar og hlutu þrír nemendur viðurkenningar.

Atli Rúnar Eyþórsson „Perlur í náttúru Íslands“ frá Kölku og bók frá Danska sendiráðinu fyrir mjög góðan námsárangur, Bergur Leó Sigurþórsson hlaut bókina „Maðurinn“ frá UMFN og „Húsið brennur“ frá Kölku fyrir góðan námsárangur og  Pálmi Þór Reynisson hlaut viðurkenningu frá Kletti björgunarsveit fyrir gott starf og ástundun.

Atli Rúnar flutti ræðu fyrir hönd nemenda og færði skólanum þakkir fyrir góð ár. Umsjónarkennari hópsins flutti einnig ræðu þar sem hann fór yfir árin þeirra saman og hvatti nemendur til dáða á næsta skólastigi. Sigurbjörg skólastjóri flutti ávarp þar sem hún óskaði nemendum velfarnaðar í framtíðinni og þakkaði starfsfólki skólans fyrir vel unnin störf en faglegur metnaður og gleði hefur einkennt skólaárið.

Að athöfn lokinni var boðið upp á kaffisamsæti í skólanum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans áttu notalega samverustund.

Nemendur í 1. – 9. bekk mættu á stutta athöfn miðvikudaginn 10. júní og fóru síðan með umsjónarkennurum og fengu vitnisburð og hrósskjöl í sínum heimastofum.

Við óskum nemendur og aðstandendum góðs sumars og þökkum samstarfið.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla