13. júní 2017

Skólaslit og útskrift 2017

Skólaslit Akurskóla fóru fram föstudaginn 2. júní, í tólfta sinn.

Nemendur í 1. – 9. bekk mættu kl. 9 í íþróttahús Akurskóla. Þar fór Gróa Axelsdóttir aðstoðarskólastjóri yfir það helsta í skólastarfinu, þrjú tónlistaratriði voru flutt og skóla var slitið. Eftir það fóru nemendur hver með sínum umsjónarkennara í sín rými og allir nemendur skólans fengu hrósskjöl og vitnisburð sinn fyrir skólaárið.

Útskrift og skólaslit fyrir nemendur í 10. bekk fór svo fram kl. 11. Anna Lilja Ásgeirsdóttir spilaði á píanó. Lovísa Ósk Nielsen flutti ávarp fyrir hönd nemenda. Aðstoðarskólastjóri ávarpaði útskriftarnemendur og gesti ásamt því að umsjónarkennari hópsins flutti ræðu. Þá voru nemendur útskrifaðir með því að lesa upp hrós um hvern og einn, fá afhenta rós og trefil merktan Akurskóla og útskriftarárinu.

Fimm nemendur í 10. bekk hlutu viðurkenningu á skólaslitum:

Alexandra Björk Jónsdóttir fyrir góðan námsárangur. Orðbragð. Bókina gaf Lionsklúbburinn Æsa.

Alísa Rún Andrésdóttir fyrir góðan námsárangur. Danska orðabók frá danska sendiráðinu og Orðbragð frá Lionsklúbbnum í Njarðvík.

Ágústa Marý Einarsdóttir fyrir góðan árangur í listgreinum. Íslenskir málshættir og orðtök frá Lionsklúbbnum í Njarðvík.

Kristján Jón Bogason fyrir góðan námsárangur og góða frammistöðu í listgreinum. Íslenska samheitaorðabókin frá Eymundsson.

Lovísa Ósk Nielsen fyrir góðan námsárangur og góða frammistöðu í listgreinum. Maðurinn gefin af UMFN.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og hlökkum til að sjá alla í haust.

Fleiri myndir í myndasafni.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla