11. febrúar 2013

Sólbær - samfélagið okkar

Sólbær - samfélagið okkar

 

Sólbær - samfélagið okkar

Nemendur 3. bekkjar bjuggu til samfélag og gáfu því nafnið „Sólbær“ eftir lýðræðislega kosningu. Verkefnið hófst þannig að við hugstormuðum og skráðum niður allt það sem þarf að vera í samfélagi til að við getum lifað þar og okkur líði vel. Síðan pöruðu nemendur sig saman og drógu miða þar sem nafn fyrirtækis eða stofnunar var skrifað á. Þá hófust umræður hjá pörunum um útlit byggingarinnar og málningar- og litavinna hófst. Það þurfti síðan að skrifa um og segja frá þeirri starfsemi sem fram fór í fyrirtækinu/stofnuninni, nokkuð góð lýsing. Flestum fyrirtækjum og stofnunum fylgja einhverskonar ökutæki og þau þurfti að búa til. Í öllum þessum fyrirtækjum og stofnunum vinna persónur og þær þurfti að skapa. Eins og sjá má á myndunum sem fylgja með þessari frétt vantar ekkert upp á sköpunargleði og hugmyndaflug barnanna.

En verkefninu lauk ekki þar heldur þurfti að gefa ákveðnar upplýsingar um persónurnar: nafn, aldur, hvar hún býr, í hvaða fyrirtæki/stofnun hún vinnur og lýsa starfi sínu þar. Þegar þessari vinnu var lokuð sömdu nemendur sögu um persónuna sína þar sem minnst þrír atburðir þurftu að gerast í þeirra lífi. Sagan þurfti að hafa nafn, upphaf, miðju og endi.

Vonandi er hægt að sjá á þessum myndum hversu mikinn metnað og mikla ánægju börnin höfðu af verkefninu. Allir voru ánægðir og stoltir af sinni vinnu.

Sjá myndir í myndasafni

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla