Stærðfræðikeppni grunnskólanema
Stærðfræðikeppni grunnskólanema var haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 10. mars síðastliðinn. Að þessu sinni tóku 129 nemendur þátt í keppninni og þar af komu 11 úr Akurskóla. Þann 22. mars var boðið til verðlaunaafhendingar á sal skólans og var öllum í 10 efstu sætunum í hverjum aldurshópi boðið ásamt foreldrum. Fulltrúar Akurskóla stóðu sig vel en tveir nemendur voru meðal 10 efstu í sínum aldursflokki. Fjölbrautaskóli Suðurnesja heldur þessa keppni til þess að auka veg stærðfræðinnar og til þess að glæða áhuga á henni. Auk þess sem keppnin er liður í að auka samstarf Fjölbrautaskólans og grunnskólanna. Nánari úrslit má sjá á heimasíðu FS http://www.fss.is/forsidan/frettir/nr/429
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


