23. apríl 2012

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja föstudaginn 23. mars. Þátttakendur voru 154 úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Í ár tóku 8 nemendur úr Akurskóla þátt, einn úr 8. bekk, fjórir úr 9. bekk og þrír úr 10. bekk. Í vikunni fyrir keppnina skoðuðu nemendur dæmi frá fyrri keppnum og undirbjuggu sig. Á keppnisdaginn var árshátíð í Akurskóla og mættu nemendur upp í FS að henni lokinni kl 14:00 þar sem boðið var upp á pizzu og gos. Keppnin hófst síðan kl. 14.30 og stóð til kl 16:00. Eftir páska var tveimur nemendum úr Akurskóla boðið að koma til að vera við verðlaunaafhendinguna í FS. Mánudaginn 16. apríl var þeim Halli Kristni Hallssyni og Teiti Ara Theodórssyni veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur.  Hallur Kristinn lenti í 7-10. sæti meðal 9. bekkinga og Teitur Ari lenti hann í 4. sæti meðal 10. bekkinga. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og stefnum að því að gera þátttöku í þessari keppni að föstum lið í skólastarfinu.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla