15. október 2026

Starfsáætlun Akurskóla 2026-2027

Starfsáætlun Akurskóla 2026-2027

Starfsáætlun Akurskóla fyrir skólaárið 2026–2027 hefur nú verið birt á heimasíðu skólans ásamt bekkjarnámskrám allra árganga og starfsáætlun Lindar.

Í skjölunum má finna margvíslegar gagnlegar upplýsingar um skólastarfið, þar á meðal áherslur skólans, skipulag skólaársins, skóladagatal, námsmat, samstarf heimila og skóla, stuðningsúrræði og annað sem snýr að daglegu starfi nemenda og starfsfólks. Í bekkjarnámskrám er jafnframt að finna upplýsingar um helstu markmið náms og starfshætti í hverjum árgangi.

Við hvetjum foreldra, forsjáraðila og aðra áhugasama til að kynna sér skjölin vel, enda veita þau góða yfirsýn yfir starfsemi skólans og þær áherslur sem lagðar verða til grundvallar námi og velferð nemenda á komandi skólaári.

Starfsáætlun Akurskóla hefur verið samþykkt af skólaráði og bíður nú formlegrar staðfestingar menntaráðs Reykjanesbæjar.

Öll skjölin má nálgast á heimasíðu skólans undir Skólinn → Skólanámskrá

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla