Starfsfólk Akurskóla tilnefnt til Hvatningarverðlauna Fræðsluráðs
Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs Reykjanesbæjar voru afhent í dag við hátíðlega athöfn í Duus-húsum. Starfsmenn Akurskóla sópuðu til sín tilnefningum.
Gísli Kjartansson fékk tvær tilnefninga fyrir smíða- og hönnunarkennslu. Hanna Rúna Kristínardóttir, Ragna Finnsdóttir og Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir fengu tilnefningu fyrir fjölbreytta kennsluhætti í 4. bekk Akurskóla. Helga Lára Haraldsdóttir og stjórnendur Akurskóla fengu tilnefningu fyrir Rauðhöfða – listaverk á lóð skólans. Agnes Ásgeirsdóttir, Ester Inga Alfreðsdóttir og Katrín Jóna Ólafsdóttir fengu tilnefningu fyrir samþætta kennslu með áherslu á Byrjendalæsi. Gróa Axelsdóttir, Sigurbjörg Róbertsdóttir og Sólveig Silfá Karlsdóttir, skólastjórnendur Akurskóla fengu tilnefningu fyrir nýbreytni í skólastarfi.
Við óskum öllum tilnefndum til hamingju með viðurkenninguna og Bjöllukórnum innilega til hamingju með verðlaunin sjálf.
Starfsfólk Akurskóla. Á myndina vantar Sólveigu Silfá og Helgu Láru.
Allir sem hlutu tilnefningar.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.