Stjörnu-Sævar fræddi nemendur um almyrkva á sólu
Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótti skólann og kynnti fyrir nemendum þann einstaka atburð sem fram undan er – almyrkva á sólu sem verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026.
Almyrkvi á sólu er sjaldgæft og stórfenglegt náttúrufyrirbæri og verður þetta í fyrsta sinn í margar aldir sem slíkur myrkvi sést frá Reykjanesskaga. Nemendur fengu fræðslu um hvað gerist þegar tunglið fer fyrir sólina, hvernig best er að fylgjast með myrkvanum og hvers vegna mikilvægt er að gera það á öruggan hátt.
Fræðslan var í boði Reykjanes jarðvangs og GeoCamp Iceland.
Við viljum einnig minna á að nemendur munu fá sólmyrkvagleraugu afhent á skólaslitum í vor, gjöf frá Reykjanesbæ í samstarfi við jarðvanginn.
Allir eru hvattir til að kynna sér myrkvann nánar á heimasíðu Sævars Helga:
https://solmyrkvi2026.is/



Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


