18. október 2011

Stöðvum einelti - afhending styrks

Stöðvum einelti - afhending styrks UMFN og Landsbankinn hafa í sameiningu ákveðið að styrkja grunnskólana í Njarðvík í baráttunni gegn einelti.  Í gærkvöldi var skólastjórum afhentur 500.000 króna styrkur til þess að verja í vinnu gegn einelti. 
Öllum nemendum Akurskóla var af þessu tilefni boðið á leik UMFN og Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknattleik sem fram fór í gærkvöldi. Fjölmargir nýttu sér boðið og sáu Njarðvíkinga leggja Hauka að velli í skemmtilegum körfuboltaleik. Við þökkum UMFN og Landsbankanum þetta frábæra framtak og minnum á fræðslufundinn í Akurskóla í kvöld.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla