28. mars 2008

Stóra upplestarkeppnin

Stóra upplestarkeppnin

Í dag fór fram, undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar, á sal skólans. Sigurlaug Ósk Eiríksdóttir og Adam Þórðarson voru valdir fulltrúar Akurskóla í Stóru upplestrakeppnina sem Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar heldur fyrir grunnskóla bæjarins og fleiri bæjarfélög á svæðinu. Keppnin fer fram 9. apríl n.k. í bíósal Duushúsa þar sem fulltrúar allra grunnskólanna mæta og valdir verða bestu upplesarar svæðisins úr hópi nemenda 7. bekkja. Að keppninni standa Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, í samvinnu við skólaskrifstofur, skóla og kennara um land allt. Við óskum Sigurlaugu Ósk og Adam til hamingju með sigurinn og þökkum öllum nemendum 7. bekkjar fyrir frábæran undirbúning og frammistöðu. Nemendur 6. bekkjar fengu að horfa á nemendur keppa og geta þeir nú hafið undirbúning fyrir keppninga sem haldin verður að ári.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla