17. nóvember 2008

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin

Í dag var Stóra upplestrarkeppnin sett í Akurskóla. Nemendur í 6.-7. bekkjum komu saman á sal og hlýddu á fulltrúa okkar frá því í fyrra, þær Sigurlaugu Ósk og Kolbrúnu Sigríði, lesa ljóð og textabrot en markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði, bæta almennan lesskilning, efla sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum.

Þær stöllur minntu okkur með flutningi sínum á þann auð sem býr í tungumáli okkar og menningararfi. Við minntumst einnig afmælis Jónasar Hallgrímssonar og Dags íslenskrar tungu, en í síðastliðinni viku unnu nemendur að verkefnum tengdum Jónasi og Degi íslenskrar tungu. Á samsöngstundum í 1.-3. bekkjum og 4.-7. bekkjum var einnig sérstök áhersla á menningararfinn.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla