Stóra upplestrarkeppnin er í dag
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður haldin í dag, 9 apríl í Bíósal Duushúsa kl 16:30. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, standa að keppninni og vonast til að sjá sem flesta. Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk lesa brot úr skáldverki eftir Jón Sveinsson og Stein Steinarr ásamt ljóði. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og aðrir ungir listamenn. Kolbrún Kristjánsdóttir og Sigurlaug Ósk Eiríksdóttir fara fyrir hönd Akurskóla. Við óskum þeim góðs gengis.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


