Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk
Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Akurskóla var haldin föstudaginn 18. febrúar en 13 nemendur í 7. bekk lásu upp úr bókinni Undraflugvélin eftir Ármann Kr. Einarsson og ljóð af eigin vali. Tveir nemendur voru valdir úr þessum hópi til að taka  þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjarnesbæ sem haldin verður í Bíósal Duushúsa 3. mars kl. 16:00. Fulltrúar Akurskóla í þeirri keppni verða þau Adam Eiður Ásgeirsson og Una María Magnúsdóttir.  Við þökkum öllum nemendum í 7. bekkjum fyrir þátttökuna en valið var óvenju erfitt í ár og óskum þeim Unu og Adam til hamingju með góðan árangur.
Stóra upplestrarkeppnin er haldin í 7. bekkjum í öllum grunnskólum landsins en markmiðið með keppninni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


