Stóra upplestrarkeppnin í Akurskóla
Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Akurskóla var haldin í dag mánudaginn 22. febrúar en Stóra upplestrarkeppnin er haldin í 7. bekk í öllum grunnskólum landsins. Í dag lásu 10 nemendur upp úr bókinni Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson og ljóð af eigin vali. Tveir nemendur voru valdir úr hópi þeirra og munu þeir taka þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Reykjarnesbæjar sem haldin verður í Bíósal Duushúsa 4. mars kl. 16:30. Fulltrúar Akurskóla í þeirri keppni verða þeir Ólafur Andri Magnússon og Teitur Ari Theódórsson. Hlutu þau bókaverðlaun frá Forlaginu en allir keppendur fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Við óskum þeim til hamingju um leið og við þökkum öllum nemendum 7. bekkja fyrir sína þátttöku.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


