27. maí 2009

Sumarlestur

Sumarlestur

Lestur er grunnur að allri færni. Þess vegna býður Bókasafns Reykjanesbæjar börnum á grunnskólaaldri upp á sumarlestur yfir sumarmánuðina. Sumarlesturinn hefst 1. júní og lýkur 31. ágúst. (1. júní er frídagur í ár svo safnið verður lokað þá). Öll grunnskólabörn fá við skólaslit bókaskrár með einkunnarblöðum sínum. Bókaskrána tekur hver og einn með sér á safnið þegar hann vill byrja í sumarlestrinum og fyllir í leiðinni út þátttökumiða sem jafnframt er happdrættismiði. Eftir hverja lesna bók fæst stimpill í bókaskrána og stafur til setja í stóru sumarlestursbókina, sem fest verður á stóran vegg innan safnsins. Haldin verður vegleg uppskeruhátíð í lok sumarlesturs þar sem dregið verður úr happdrættismiðum og þátttökuverðlaun veitt.

LESTUR ER LÍFSSTÍLL

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla