Sumarlestur
Eins og undanfarin ár koma áhugasöm börn í afgreiðslu safnsins og tilkynna þátttöku. Börnin fá miða til að skrifa nafn sitt og aldur og teikna mynd af sjálfu sér og er miðinn að því loknu staðsettur á eyjunni. Sjóræningjar ógna eyjabúum og með því að vera duglegir að lesa geta íbúarnir búið til varnargarð úr límmiðadoppum sem fást eftir hverja lesna bók. Lesnar bækur eru einnig skráðar í þar til gerða bókaskrá, sem börn fengu við slit skólanna en geta einnig fengið í afgreiðslu Bókasafnsins. Börnin fá stimpil í bókaskrána eftir hverja lesna bók og límmiða eins og áður er getið.
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


