26. maí 2010

Sumarlestur 2010

Sumarlestur 2010

Vertu með í sumarlestri á Bókasafni Reykjanesbæjar  frá 1. Júní til 31. ágúst. Þú lest það sem þú vilt, þegar þú vilt og á þínum hraða, en bókina þarftu að fá lánaða á bókasafninu. Í fyrstu heimsókninni á safnið fyllir þú út þátttökuseðil. Hann gildir sem happdrættismiði og fer í pott sem dregið verður úr á uppskeruhátíð í  haust. Eftir lestur hverrar bókar færðu límmiða í bókaskrána og hlekk í bókaorminn, sem mun hlykkjast um safnið í allt sumar. Allir þáttakendur sem mæta á uppskeruhátíð fá viðurkenningu.

Öll börn frá við  skólaslit bókaskrána  sem gildir líka í sumarlestri Bókasafns Reykjanesbæjar. Skrána er einnig hægt að fá á bókasafninu, en í hana er lesturinn skráður niður. Sýndu aftaksturinn í skólanum þínum í haust

Í hverja skrá er hægt að safna sér 18 límmiðum. Ef þú fyllir 1 skrá geturðu fengið aðra á Bókasafninu,

Uppskeruhátíðin verður í septemberbyrjun. Þá verður dregið úr þátttökuseðlum og heppnir þátttakendur fá vinning. Allir þátttakendur sem mæta á hátíðina fá viðurkenningu.

Sumarlestur er fyrir börn á grunnskólaaldri, 6-16 ára.

 

Sjá:  http://www.reykjanesbaer.is/bokasafn/

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla