Sumarmarkaður Akurskjóls
Þann 29. maí hélt Akurskjól sinn árlega sumarmarkað í annað sinn. Dagurinn heppnaðist afar vel og var ánægjulegt að sjá börn, fjölskyldur og starfsfólk koma saman og njóta samverunnar.
Á markaðnum voru seldir handgerðir munir sem börnin höfðu unnið af mikilli natni og sköpunargleði. Einnig voru seldir happdrættismiðar og popp sem nutu mikilla vinsælda meðal gesta.
Við viljum færa öllum sem mættu innilegar þakkir fyrir stuðninginn og þátttökuna. Það var einstaklega gaman að sjá hversu margir lögðu leið sína á markaðinn og sýndu verkefnum barnanna áhuga.
Árangurinn fór fram úr okkar björtustu vonum og söfnuðust um 200 þúsund krónur sem renna til Barnaspítala Hringsins. Við erum afar stolt af börnunum sem sýndu frumkvæði, ábyrgð og metnað í undirbúningi og framkvæmd markaðarins.




Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


