Svakalega lestrarkeppnin
Nemendur í 1.–7. bekk Akurskóla tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni og lásu samtals 73 þúsund mínútur! Það jafngildir rúmlega 1.200 klukkustundum af lestri og er sannarlega glæsilegur árangur.
Keppnin var skemmtilegt tækifæri til að efla lestraráhuga og hvetja nemendur til að njóta góðra bóka. Hver lesin mínúta taldi og saman náðu nemendur þessum frábæra árangri.
Við óskum nemendum til hamingju og þökkum starfsfólki og fjölskyldum fyrir að styðja við lesturinn.
Lestur er bestur!
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


