Sveitaferð
Miðvikudaginn 21. maí förum við í sveitarferð. Að þessu sinni ætlum við að heimsækja bæinn Bjarteyjarsand á Hvalfjarðarströnd. Fjölmargt er í boði á Bjarteyjarsandi og ætti dagurinn að verða mjög áhugaverður og skemmtilegur.
Grill er á staðnum og hugmyndin er sú að nemendur komi með pylsur og pylsubrauð til að grilla og einhvern drykk, þó ekki gos eða orkudrykki. Skólinn  sér um sósur. Mjólk er í boði á staðnum fyrir þá sem það vilja.
Nauðsynlegt er að nemendur verði klæddir eftir veðri þennan dag og í góðum skóm eða stígvélum þar sem í boði er að fara í fjöru.
Rútan kemur í Akurskóla klukkan 8:10 og við ætlum að leggja af stað fljótlega eftir það þannig að nauðsynlegt er að nemendur komi tímanlega í skólann. Við áætlum að vera komin heim ekki seinna en klukkan 14:30.
Við hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu Bjarteyjarsands www.bjartey.is og kanna hvað er í boði.
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


