20. desember 2011

Sýning frá Hár og list hópnum

Sýning frá Hár og list hópnum

  • Þann 19. des var haldin sýning hjá Hár og List hópnum en það er val hjá 8. 9. og 10. bekkingum.

  • Með þessari sýningu vildu nemendur og kennari sýna hvað þau hafa verið að vinna að síðan í haust og   hvað hægt er að  búa til úr  mismunandi efnum. Markmiðið er að að nýta ýmislegt sem við finnum í kringum okkur, jafnvel  hluti sem annars yrði hent í ruslið.

  • Nemendur hönnuðu  mismunandi hárgreiðslur, hárskraut sem þau bjuggu til úr gömlum gallabuxum,sokkabuxum,neti af mandarínukassa og fleiru. Einnig hönnuðu  þau kjóla, vesti pils,stuttbuxur og fleira úr svörtum plastpokum sem módelin klæddust á sýningunni. Þrjú yngstu módelin báru hálsmen sem voru búin til úr auglýsingabæklingi .

  • Sýningin tókst mjög vel og vill kennarinn þakka öllum þeim sem tóku þátt  í sýningunni  og þeim sem hjálpuðu til  við að láta þetta ganga upp. Myndir af sýningunni eru í myndabankanum.

  • Hnetur

    Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

    • Reykjanesbær
    • Heimili og skóli
    • Foreldrafélag Akurskóla