7. apríl 2011

Sýning hjá 2.-3. bekk

Sýning hjá 2.-3. bekk

Í dag sáu krakkarnir í 2.-3. bekk í Akurskóla sýningu um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi.

Krakkarnir í hverfinu, er leikþáttur þar sem brúður eru notaðar til að fræða börnin um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Fræðslan felst í því að brúðurnar ræða saman um það sem þær hafa lent í. Stefán segir vini sínum frá því hvernig mamma hans lamdi hann stundum fast og hvernig þau fengu svo bæði hjálp eftir að hann sagði kennaranum sínum frá því.
Skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi  auk kennara voru viðstaddir sýninguna.
Við fengum fjárstyrk frá Velferðarsjóði barna og foreldrafélagi Akurskóla og  þökkum við þeim kærlega fyrir.
Brúðustjórnendur eru Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds. 
Ef þið óskið eftir frekari upplýsingum um efnið hafið þá samband við skólann þar sem skólinn getur ljósritað efnið ef foreldrar vilja kynna sér það nánar. 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla