3. febrúar 2009

Tannverndarvika 2009

Tannverndarvika 2009

Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár er sérstök áhersla á tannþráðinn og daglega notkun hans.

Öllum þriggja, sex og tólf ára börnum stendur til boða ókeypis eftirlit hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands, samkvæmt samningi frá 1. janúar 2009 – 31. desember 2010. Í eftirliti felst meðal annars viðtal og fræðsla um mataræði, munnhirðu og annað er snertir tannvernd. Einnig er um að ræða skoðun, skráningu, hreinsun tanna og flúormeðferð fyrir alla hópana, auk röntgenmyndar fyrir 12 ára hópinn. Sjá dreifibréf.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla