Þema – Landafræði
Fyrsta þemað hjá okkur í Stapakoti (6-7 bekk) tókum við fyrir norðurlöndin. Nemendum var skipt upp í 4 manna hópa og fékk hver hópur eitt af norðurlöndunum. Þau áttu  að afla sér upplýsinga um það land og setja upplýsingarnar á karton. Þegar þessu verkefni lauk tók við einstaklingsvinna þar sem nemendur áttu að teikna karl eða konu frá viðkomandi landi og klippa hana út. Nemendur áttu svo að klæða persónuna upp með efnisbútum ásamt því að búa til sögu um viðkomandi persónu sem tengist þeirra landi. Nokkrir nemendur gerðu svo stóran fána af öllum löndunum og koma fígúrurnar til með að hanga fyrir neðan sitt land. Öll vinna er til sýnis hér upp í Stapakoti og á ganginum.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


