Þemadagar
Örfréttir frá 2. og 3. bekk.
Í þemavikunni var margt skemmtilegt gert. Hún stóð yfir í þrjá daga og byrjaði á miðvikudegi og endaði á föstudegi. Þemaverkefnið að þessu sinni voru Þjóðsögur og ljóð. Við fengum góðan gest á Sal, Gylfa Guðmundsson til að byrja þemavikuna og las hann sögurnar 18 barna faðir í Álfheimum, Gilitrutt og Rauðhöfða öðru nafni Hvalurinn í Hvalvatni. Að því búnu fóru nemendur í sitt rými og kennarar lásu söguna Dýrið í Innri – Njarðvík og Djáknann á Myrká. Í útikennslu var farið á söguslóðir og var það bæði fróðlegt og ánægjulegt. Nemendur unnu þessar sögur í hópum. Þau gerðu bæði klippimyndir úr tauefni og pappír. Að endingu var textinn myndskreyttur og límdur á karton. Myndir prýða veggi Akurskóla og er foreldrum velkomið að skoða.
Bestu kveðjur Anna, Hanna, Helena og Lísa.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


