Þemadagar og Vorhátíð í Akurskóla

Það var sannkölluð gleði og fjör á síðustu dögum skólaársins þegar þemadagar og vorhátíð fóru fram dagana 3.-5. júní! Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki alltaf verið samvinnufúst, létu nemendur og starfsfólk það ekki á sig fá og skemmtu sér konunglega.
Yngstu nemendurnir í 1.-4. bekk nutu þess að vera „Undir berum himni“ með fjölbreyttum viðburðum. Þar má nefna spennandi fjöruferð, sundsprell í Akurskólalaug, skemmtilegt útibingó og ævintýraferð í Njarðvíkurskóga. Þó að veðrið hafi stundum strítt þeim aðeins, fundu kennarar og nemendur skapandi lausnir og skipulögðu skemmtileg verkefni innandyra.
Nemendur í 5.-7. bekk tóku þátt í fjölbreyttum stöðvum þar sem hóparnir voru blandaðir þvert á árganga. Keppni í hinu vinsæla Akurtrölli vakti mikla lukku, sundferð í Vatnaveröld var einstaklega skemmtileg og ratleikurinn og útileikirnir vöktu mikla kátínu hjá öllum þátttakendum.
Elstu nemendurnir í 8.-10. bekk áttu líka að vera "Undir berum himni" en þurftu að færa sig inn vegna veðurs. Þeir allra hugrökkustu fóru í gönguferð í rokinu og höfðu gaman af en annars voru skipulagðar stöðvar innandyra sem heppnuðust frábærlega vel.
Hápunktur vikunnar var síðan glæsileg vorhátíð þann 5. maí. Nemendur mættu glaðir og kátir í skólann og tóku þátt í litríkri skrúðgöngu um hverfið. Eftir skrúðgönguna fór fram keppni á hinum ýmsu stöðvum þar sem allir nemendur fengu að þreyta skemmtilegar þrautir og safna stigum fyrir árganginn sinn. Sigurvegarar voru á yngsta stigi 4. bekkur, á miðstigi 5. bekkur og á unglingastigi 10. bekkur. Skólamatur bauð upp á pylsur í hádeginu sem slógu í gegn. Söngvarinn Ágúst sem keppti í söngvakeppni sjónvarpsins í ár kom og skemmti nemendum. Nokkrar stúlkur úr 4. -6. bekk höfðu undirbúið dans við lagið hans úr söngvakeppninni, Enginn eins og þú, og stóðu þær sig svakalega vel!
Það má með sanni segja að þessir dagar hafi verið eftirminnilegir og skemmtilegir fyrir alla í skólasamfélaginu. Gleði og samvinna einkenndu dagana og fóru nemendur heim með bros á vör og góðar minningar í farteskinu!

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.