Þemasýning á mánudaginn kl. 12.30
Þemanu „Undir berum himni“ lauk í dag föstudaginn 4.júní en síðastliðnir dagar hafa verið hreint út sagt frábærir þar sem veðurguðirnir hafa verið okkur afar hliðhollir. Nemendur og starfsfólk skólans hafa sameinast í fjölbreyttum og skapandi verkefnum og brosandi andlit hafa verið áberandi þessa vikuna. Foreldrar og aðstandendur nemenda Akurskóla eru hvattir til að koma í heimsókn til okkar á opið hús mánudaginn 7. júní kl. 12.30 og skoða og upplifa afrakstur vikunnar með okkur.
Mánudagurinn 7. júní verður líka einstaklega fjölbreyttur og skemmtilegur en þá er vordagur. Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá og byrja daginn hjá umsjónarkennara sínum. Síðan tekur við bekkjakeppni þar sem keppt er um vorhátíðarbikarinn. Skólamatur býður öllum nemendum upp á grillaðar pylsur í hádeginu. Foreldrar og aðstandendur nemenda Akurskóla eru síðan eins og áður segir boðnir á opið hús frá 12.30 til skólaloka.
Við viljum nota tækifærið og minna nemendur á að skila bókum á bókasafnið og taka gögn og óskilamuni um leið og við þökkum fyrir skemmtilegar og ánægjulegar stundir.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


