Þemavika
Í dag hefst þemavika í Akurskóla. Þemað að þessu sinni ber nafnið Undir berum himni en eins og nafnið gefur til kynna þá er lögð rík áhersla á útikennslu.  Nemendur vinna saman í blönduðum hópum að skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum sem að stórum hluta fara fram utan dyra. Nemendur og forráðamenn þeirra eru því beðnir um að fylgjast vel með veðurspá og passa upp á að börn þeirra komi klædd eftir veðri. Allar sérgreinar falla niður þessa viku, þar á meðal íþróttir og sund, þar sem hefðbundinni stundaskrá er vikið til hliðar til að meiri tími fáist til að kynna sér námsefni þemavikunnar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


