Þemavika, fjölmenning
Þemavika í október.
Þemavika var í Akurskóla 5. – 9. október. Yfirskrift þemavikunnar var Fjölmenning og fékk 4. og 5. bekkur Evrópu sem viðfangsefni. Í upphafi var rætt við nemendur um heimsálfurnar sjö, löndin í Evrópu, fjölbreytileika þeirra og mismunandi tungumál og menningu. Síðan var nemendum skipt í hópa sem var ætlað að útbúa veggspjöld um löndin í Evrópu þar sem tiltekin atriði áttu að koma fram, s.s. kort af landinu, fáni, helstu sérkenni, menning, tungumál, stjórnarfar, gjaldmiðill og þjóðbúningar. Nemendur unnu einnig með tölulegar upplýsingar í stærðfræðitímunum sem þau settu fram í súluritum. Upplýsingar og efniviður í þemavinnuna var aðallega sóttur í bækur og á vef.
Góðir gestir komu í heimsókn til okkar í þemavikunni. Það voru Magnús Pálsson og Helga Andrésdóttir en þau eru foreldrar barna í 4. – 5. bekk. Magnús flutti fyrirlestur um Perú og sýndi okkur myndir og muni frá því landi. Helga sagði okkur frá búsetu sinni í Danmörku og sýndi okkur myndir þaðan. Báðir fyrirlestrarnir mæltust mjög vel fyrir og voru einkar áhugaverðir og fróðlegir. Við þökkum Magnúsi og Helgu kærlega fyrir þeirra framlag.
Í lok þemavikunnar var síðan opið hús fyrir foreldra þar sem hægt var að skoða glæsilega sýningu um löndin í Evrópu.
Krakkarnir í 4. og 5. bekk voru einstaklega dugleg og áhugasöm
Hægt er að skoða fleiri myndir inn á myndasíðu.



Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


